Music World
 
Исполнители:
 
 
 
English versionSwitch to English 
Sálin Hans Jóns Míns




Тексты песен Sálin Hans Jóns Míns

Текст песни "Á einu augabragði"


Sem bresti stíflugarðar
og streymi heitt og kalt,
á einu augabragði
virðist endurnýjast allt.
Er þetta annað upphaf
eða er allt búið spil?
Ég finn í hverri frumu
eitthvað undarlega til.

Það er sem eitthvað þverri
en þó sem bætist í.
Já, ég virðist ofurnæmur
en þó dofinn næstum því.
Það er ekki allt sem sýnist
og svo margt ég ekki skil.
Og ég finn í hverri frumu
eitthvað undarlega til.

Um fingur mér og fætur
fara tilfinningaflóð.
Kannski' er allt á enda runnið
eða finn ég nýja slóð?

(Ég finn svo til)
Það gerðist eitthvað undur
(Ég elska þig)
Hvað hefur komið yfir mig?
(Hver huggar mig?)
Það fór eitthvað í sundur
(Hvað verður nú?)
En kannski tekur betra við
(Ég finn svo til)
Oh, ég finn í hjarta mínu
(Ég finn svo til)
eitthvað svo undarlega til.
Svo undarlega til.

Sem bresti stíflugarðar
(Sem bresti stíflugarðar)
og streymi heitt og kalt
(og streymi heitt og kalt)
á einu augabragði
(á einu augabragði)
það umturnaðist allt
(það umturnaðist allt)
á einu augabragði
(á einu augabragði)
aðeins einu augabragði
(á einu augabragði)
það gerðist á einu augabragði
(á einu augabragði
á einu augabragði).

комментарии публикуются при поддержке Disqus




© 2011 Music World. Все права сохранены.