Music World
 
Исполнители:
 
 
 
English versionSwitch to English 
Nýdönsk




Music World  →  Тексты песен  →  N  →  Nýdönsk  →  Тексты песен  →  Apaspil

Тексты песен Nýdönsk

Текст песни "Apaspil"


Þetta eru mest seldu buxurnar í búðinni í dag,
viltu máta? Get ég aðstoðað?
Vá þær fara þér vel og eru fitt á þér,
þú ert eins og módel klippt úr auglýsingu frá In Wear.
Að þessum orðum töluðum vindur unga stúlkan sér
á bak við borð og vill fá borgaðar buxurnar.
Með bros á vör greiðslan innt af hendi er,
hvað er ekki gert til þess að vera eins og hinir?
Til að vera eins og allir?
Viðlag:
Hvernig get ég látið þig hætta að apa eftir öðrum
þegar ég minnist þess og veit að þú ert komin af öpum.
Eins og ég.
Í dag færðu að heyra flottasta poppið í útlöndum
og ef þú gefur í það skít hlýtur þú að vera skrýtin.
Ef þú vilt komast á stall með nokkrum útvöldum,
kemur þú til okkar og við dönsum eins og gert er í Lundúnum.
Viðlag...
Á morgun verð ég fugl og flýg um loftin blá.
Fylgist með kamelljónunum aðlagast aðstæðum
svo að á endanum verður hvergi mann að sjá
mikið verður lítið gaman að lifa þá.
Viðlag...

комментарии публикуются при поддержке Disqus




© 2011 Music World. Все права сохранены.