Benni Hemm Hemm
"Sorgartár"

Tifa strá í blístri
lifa grönn í nístingskalda
sofa laust er lægir

Ýfir sjó í auga og eista
rífur dropans undiralda
andann af vörum

Svífur grjót í fuglatísti
en hvergi bifast fargið falda
né sefast augnaægir